Eins og í fyrra standa SVÞ og VR fyrir átakinu „Dagar verslunar og þjónustu“ og var átakinu formlega ýtt úr vör á aðalfundi SVÞ þann 17. mars n.k. og stendur til 4 apríl. Í fyrra þótti átakið takast mjög vel og er ætlunin að gera enn betur í ár.
Tilgangurinn er tvíþættur;
- Vekja athygli á mikilvægi verslunar og þjónustu, atvinnugreinar þar sem um fjórði hver Íslendingur starfar.
- Hvetja Íslendinga á jákvæðan og ábyrgan hátt til að „spila með“ og taka þátt í að snúa hjólum atvinnulífsins með því að eiga viðskipti við verslunar- og þjónustufyrirtæki.
Þema vikunnar er samspil einstaklinga og atvinnulífsins þ.e.a.s. til þess að fyrirtæki geti verndað og aukið störf þurfa þau á neyslu almennings að halda. Við erum öll hluti af sömu keðjunni og með samhentu átaki getum við eflt hana og styrkt.
A-stöndum hefur verið dreift til fyrirtækja. Hafið samband við skrifstofu SVÞ ef þið fáið ekki þetta kynningarefni til ykkar, það má þá sækja það á skrifstofu SVÞ, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.
Öflug markaðsherferð
Til að vekja athygli á átakinu og fá landsmenn til að taka þátt, hefur margskonar auglýsinga- og kynningarefni verið útbúið. Auk þess að birta auglýsingar í stærstu fjölmiðlum landsins verður barmmerkjum og borðstöndum dreift í allar verslanir landsins, sem við hvetjum ykkur til að nota óspart meðan á átakinu stendur. Allar nánari upplýsingar um kynningarefni er að finna á þessari vefsíðu.
Merkjum allt auglýsingaefni
Flestir stærstu auglýsendur landsins eru félagar í SVÞ og er það markmið okkar að merki átaksins (lógó) „Spilum saman“ sjáist á öllu auglýsingaefni þeirra í prentmiðlum á tímabilinu. Nú þegar hafa flestar auglýsingastofur landsins fengið merkið sent til sín, en það má jafnframt nálgast hér á þessari vefsíðu.
Þú átt leik
Þú spilar stórt hlutverk því fljótlegasta leiðin til að kynna „viku verslunar og þjónustu“ meðal starfsmanna aðildarfélaga SVÞ er þegar þú áframsendir þennan tölvupóst á sem flesta starfsmenn innan þíns fyrirtækis og hvetur fólk til að spila með og koma hjólum atvinnulífsins í gang saman.


